Aukin afköst og hagkvæmni í greiningum á Prnp riðugeni - Haustið 2022

sauðfé kynbætur Riðugen (PRNP) DNA raðgreining
DOI: 10.5281/zenodo.7541033 Publication Date: 2023-01-16
ABSTRACT
Greining á riðugeninu Prnp er mikilvægur þáttur í kynbótastarfi íslensks sauðfjár. Tilteknir erfðabreytileikar í riðugeninu veita einstaklingum aukið þol gagnvart riðu á meðan aðrir auka næmni gagnvart sjúkdóminum. Upplýsingar um erfðasamsetningu Prnp í sauðfjárhjörðum er því gríðarlega mikilvægt tól í baráttu bænda gagnvart sjúkdóminum. Markmið verkefnisins var að auka afköst og lækka verð á greiningum riðugens hér á landi. Í verkefninu voru alls 1913 sýni frá um 150 bæjum greind á rannsóknastofu Matís í erfðafræði. Sá stuðningur sem verkefnið hlaut úr Þróunarfé Sauðfjárræktar skipti sköpum fyrir Matís að geta boðið upp á samkeppnishæft verð til bænda sem leiddi til nær tvöföldun á fjölda greindra sýna miðað við árið 2021. Þessar erfðaupplýsingar munu nýtast ræktunarstarfi sauðfjárræktar í heild sinni og að öllum líkindum leiða til aukins þols gagnvart riðu í íslensku sauðfé.<br/>Styrktaraðilar: Þróunarfé - Sauðfjárrækt<br/>
SUPPLEMENTAL MATERIAL
Coming soon ....
REFERENCES ()
CITATIONS ()
EXTERNAL LINKS
PlumX Metrics
RECOMMENDATIONS
FAIR ASSESSMENT
Coming soon ....
JUPYTER LAB
Coming soon ....